Posts Tagged ‘dyslexia’

Vissir þú að á Íslandi glíma milli 40 og 50 þúsund (50.000!) manns við lestrarörðugleika? Lestrarörðugleikar koma jafnan í ljós við upphaf skólagöngu. Um 9.000 nemendur eru í 1. og 2. bekk á landinu öllu(Heimild: Menntamálaráðuneytið).

Góðan daginn!  Þar sem það styttist nú í stóru prófin – og svo eru þau litlu alltaf þarna innan um – þá ætla ég í dag að skrifa um einfalda aðferð sem styttir upprifjunartíma gríðarlega, minnkar kvíða og prófstreitu og bætir árangur á prófum.  Hvað er betra en það?

Hefur þú einhvern tíma gert grín að manneskju sem er áttavillt, á erfitt með að muna og er jafnvel lengi að greina milli vinstri og hægri? Er þetta kannski sama manneskjan og hefur fjörugt ímyndunarafl og ríka sköpunargáfu? Kannski er þessi manneskja haldin lesblindu…

Hjá Betra nám í Mosfellsbæ kennir ýmissa grasa. Þar er ekki einungis boðið upp á námskeið fyrir lesblinda heldur má þar einnig finna námskeið í námstækni sem börn og foreldrar geta farið saman á. 

Ef þú hefur einhvern tímann séð einhvern renna hratt í gegnum texta, þá hefur þú e.t.v. hugsað með þér “ég get ekki lesið svona hratt, ég er svo hæglæs”. Sumir lesendur virðast lesa hratt frá náttúrunnar hendi ef svo má segja, meðan aðrir þurfa mikinn tíma og æfingu.  Og já, lesblindir nemendur geta tileinkað sér [...]

Lesblinda (dyslexia) er samheiti einkenna sem eiga það fyrst og fremst sameiginlegt að trufla fólk við lestur. Erfiðleikarnir birtast í mismunandi myndum, og má nefna þá helstu hér: Lesblinda (dyslexia), skrifblinda (dysgraphia), reikniblinda (dyscalculia), athyglisbrestur (ADD) og athyglisbrestur með ofvirkni (ADHD). Einkenni lesblindu geta verið mjög breytileg frá einum manni til annars. Eftirfarandi er listi [...]