Góðan daginn! Ef þú hefur lært tungumál árum saman, en getur hvorki skilið né talað við innfædda, þá ertu ekki ein(n) um það. Í þessum pósti reyni ég að varpa ljósi á það hvers vegna við lærum tungumál svo seint og illa…og sýni líka einfalda en öfluga glósutækni þegar kemur að tungumálum.
Posts Tagged ‘enska’
Það hljómar e.t.v. kunnuglega, en mjög margir lesblindir eiga erfitt með að læra tungumál. En áður en lengra er haldið hef ég ákveðið að setja hér inn nokkra nytsamlega tengla…vonandi til hjálpar einhverjum.
Ef þú hefur lært tungumál í skóla þá kannast þú líklega við að hafa lent í basli með að tjá þig á viðkomandi tungumáli þegar á reynir. Hvernig stendur á því að samfelld tungumálakennsla skilar sér ekki í betur en raun ber vitni?