Posts Tagged ‘lestur’

Öll ferðalög hefjast heima, og það eru foreldrar sem móta börnin. En líka skólarnir. Þar hefur margt breyst ánægjulega til batnaðar síðan ég sat í grunnskóla, kennslan orðin frjórri, skemmtilegri, og skólabækurnar aðgengilegri – eða sumar þeirra.

Jæja, nýliðinn vetur var vetur fjarnámskeiðanna.  Þau eru nú fjögur talsins,  fimm ef vefbókarnámskeiðið Stubbastoð er talið með.  Uppsetning og þróun fjarnámskeiðanna hefur að sjálfsögðu tekið sinn tíma en þau eru kærkomin viðbót við námskeiðaflóruna og ákveðinn valkostur við einkaráðgjöf og námskeið sem Betra nám býður upp á.

Vissir þú að á Íslandi glíma milli 40 og 50 þúsund (50.000!) manns við lestrarörðugleika? Lestrarörðugleikar koma jafnan í ljós við upphaf skólagöngu. Um 9.000 nemendur eru í 1. og 2. bekk á landinu öllu(Heimild: Menntamálaráðuneytið).

Hefur þú einhvern tíma gert grín að manneskju sem er áttavillt, á erfitt með að muna og er jafnvel lengi að greina milli vinstri og hægri? Er þetta kannski sama manneskjan og hefur fjörugt ímyndunarafl og ríka sköpunargáfu? Kannski er þessi manneskja haldin lesblindu…

Hjá Betra nám í Mosfellsbæ kennir ýmissa grasa. Þar er ekki einungis boðið upp á námskeið fyrir lesblinda heldur má þar einnig finna námskeið í námstækni sem börn og foreldrar geta farið saman á. 

Í Fréttatímanum (28.1.2011) er fjallað um rafbækur og möguleika þeirra.  M.a. er vísað í Guðbjörgu Emilsdóttur, sérkennara hjá Snælandsskóla og Davis leiðbeinanda, sem segist mæla með notkun þeirra.  ”Svo spennt að hún las stundum langt fram á kvöld” segir móðir.

Óhætt er að segja að lestölvan Amazon Kindle hafi slegið í gegn. Ég hafði nú velt notagildi hennar fyrir mér í nokkurn tíma og sló loks til og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum…þvert á móti.

Lesblinda (dyslexia) er samheiti einkenna sem eiga það fyrst og fremst sameiginlegt að trufla fólk við lestur. Erfiðleikarnir birtast í mismunandi myndum, og má nefna þá helstu hér: Lesblinda (dyslexia), skrifblinda (dysgraphia), reikniblinda (dyscalculia), athyglisbrestur (ADD) og athyglisbrestur með ofvirkni (ADHD). Einkenni lesblindu geta verið mjög breytileg frá einum manni til annars. Eftirfarandi er listi [...]